Minningarsjóður Margrétar Björgólfsdóttur


Minningarsjóður Margrétar Björgólfsdóttur
- auglýsir eftir umsóknum

Hjónin Þóra Hallgrímsson og Björgólfur Guðmundsson stofnuðu í ársbyrjun 2005 minningarsjóð um dóttur sína Margréti Björgólfsdóttur og lögðu fram stofnfé að fjárhæð 500 milljónir króna.

Markmið sjóðsins er að stuðla að heilbrigðu líferni og bættu mannlífi, efla menntir, menningu og íþróttir. Markmiðum sínum hyggst sjóðurinn ná með því að styrkja einstaklinga, verkefni og félög til mennta, framtaks, athafna og keppni - ekki síst á alþjóðlegum vettvangi.

Stjórn sjóðsins skipa Björgólfur Guðmundsson, formaður, Bentína Björgólfsdóttir og Þórunn Guðmundsdóttir hæstaréttarlögmaður.


Tilkynning

Þar sem 2/3 af sjóðnum hafa tapast vegna efnahagsvanda síðustu mánuða, er mjög ólíklegt að úthlutað verði úr sjóðnum á þessu ári.

Vakin er athygli á því að því miður verða innsendar umsóknir haustið 2008 ekki teknar til umfjöllunar og er þeim umsækjendum bent á að hafa samband við sjóðinn ef þeir óska eftir að fá gögn sín send tilbaka.